Blogg Írisar
09.02.2007 17:21:57 / irismjoll

Komin helgi eina ferðina enn!!

Jæja enn einn föstudagurinn runninn upp. Ótrúlegt hvað tíminn líur hratt. Viktoría var heima hjá Dagmar fram á hádegi svo ég þurfti ekki að fella niður kennslu í eins mörgum tímum.
Er búin að horfa á nýjastu þættina af Prison Break og Heroes og er að ná í Lost. Notalegt að liggja uppi í rúmi og horfa á einhverja dellu. Gott þegar maður hefur tíma til þess.
Bless í bili.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 13:39:46 / irismjoll

Veikindi

Í síðustu viku var Viktoría með flensu og nú er Dagmar orðin lasin. Þetta er nú meiri pestin sem er að ganga. Ég tók stelpurnar til mín á laugardaginn því pabbi þeirra var orðinn veikur. Dagmar var orðin slöpp þegar hún kom úr skólanum á þriðjudaginn, var ómögulega, kalt og illt í hálsinum. Hún er nú að hressast, held ég, svaf eins og steinn í alla nótt svo vonandi verður þetta ekki meira.

Ég mætti ekki á starfsdag í gær, var fegin að þurfa ekki að fella niður kennslu en veit ekki hvernig verður á morgun. Ég hef ekki þurft að vera heima svona marga daga síðan ég byrjaði í MK. Maður heldur að maður sé ómissandi en auðvitað bjargast þetta allt. Nemendur mínir eru svo duglegir að þeir halda bara áfram að  vinna þó kennarann vanti.

Þessa stundin er Perla í snyrtingu. Fór með hana til konu hérna í Hafnarfirði. Hún hefur farið til hennar áður og var sko ekkert á því að fara aftur. Streyttist á móti því að fara inn og reyndi af öllum mætti að komast út. Er bara að bíða eftir hringingu frá konunni um að ég megi sækja hana. Hún var voða fín síðast fékk meira að segja borða í hálsólina.


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 23:05:47 / irismjoll

Rúmu ári seinna

Datt í hug að byrja aftur á blogginu. Hver veit nema ég verði aðeins duglegri núna. Sit uppi í rúmi með tölvuna. Er búin að horfa á tvo Prison Break þætti og er að bíða eftir nýjustu Heroes þáttunum. Finnst þetta ótrúlega notalegt, eina sem vantar er bland í poka. Ég kenni svo mikið á föstudögum að ég hef ekki orku í neitt nema algjöra afslöppun. Fór eftir vinnu á Ítalíu og fékk mér pizzu áður en haldið var heim. Var svo sem ekki í leiðinni en langaði til að setjast niður og fá mér að borða. Stelpurnar eru hjá pabba sínum svo ég ætla að liggja í leti og sofa fram á ef ekki fram yfir hádegi. Bless í bili.:lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 21:45:28 / irismjoll

Vinna á morgun

Á morgun byrjar fjörið í MK aftur eftir frí. Mér finnast frí voða góð en ég er líka alltaf voða glöð að hitta félagana aftur.

Fór í Smáralindina með Dagmar og Viktoríu, það átti að kaupa föt á útsölunum. Dagmar fann ýmislegt en Viktoría ekki. Gengur bara betur næst, helst ekki næstu daga:$

Ég skellti mér út á lífið á gamlárskvöld. Heimsótti Evu mína og sambýlinga hennar. Ég vakti auðvitað athygli ef ekki bara fyrir þær sakir að ég var laaaaaaannnnng elst en mér var vel tekið.


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.12.2005 22:59:41 / irismjoll

Fjand... flugeldar eða þannig!

Það styttist í áramótin jibbí. Mikið held ég að hún Perla mín verði ánægð þegar nýtt ár er gengið í garð og ró komin á. Hún er nefnilega ekkert hrifin af þessum flugeldum, það er bara allt of mikill hávaði í þeim. Hef ekki þorað að skilja hana eftir eina í dag því hún var við það að fá hjartaáfall í gærkveldi og þó var nú hávaðinn ekkert rosalegur.

Hef verið að flakka á milli búða soldið síðustu daga. Fékk hálfgert kaupæði þegar jólavaran fór að lækka. Gat nú ekki látið kreditkortið kólna :lol: Ég þurfti að fara í Rúmfatalagerinn í dag, tek sérstaklega fram þurfti, og þar var búið að hækka afsláttinn á jólavörunni í 75%. Eyddi góðum tíma þar og datt niður á jólaefni sem kostaði bara 25 kr. metrinn. Ég keypti 6 metra hugsaði það gæti nú verið gott að eiga þetta ef ég myndi nú hefja bútasauminn aftur og sauma jóladúka. Já, þá er nú gott að eiga 6 metra af jólaefni í bak. Konan við hliðina á mér var örugglega MIKIL saumakona því hún keypti restina af stranganum sem reyndust vera 21 metri. Sjálfsagt nokkrir jóladúkar þar. :P

Er boðin í mat hjá fyrrverandi á morgun. Er fegin að þurfa ekki að sjá um mat svona einu sinni, það er nú ágætis tilbreyting.

Óska öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir heimsóknir á síðuna.


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.12.2005 21:08:06 / irismjoll

Jóladagur

Var að koma úr jólaboði hjá fyrrverandi tengdaforeldrum mínum. Þau eru alveg yndislegt fólk, vildu endilega að ég kæmi með dætrum mínum og auðvitað fylgdi Eva með. Það er soldið skrítið að koma inn í svona stóran hóp og vera allt í einu ekki hluti af honum, en þó samt, en þetta er allt svo gott fólk að eiginlega var bara erfitt að ganga inn og svo var það búið.

Gærdagurinn var mjög góður. Ég bauð Óla að vera með okkur og áttum við öll notalega kvöldstund. Gleðin hjá börnunum var mikil, sérstaklega hjá Dagmar sem fékk sinn fyrsta GSM. Ég var búin að kvíða þessu aðeins af því að jólin í fyrra voru svo afslöppuð, sólbað á aðfangadag og take away en þetta tókst eins og ég sagði mjög vel. Vildi samt vera í sól á þessum tíma en það er nú ekki hægt að kvarta yfir veðrinu.

Díana hringdi frá S-Afríku í gær, hitastigið 26 gráður en ekki sól. Sjálfsagt eitthvað svipað hjá Drífu systur í Ástralíu. Ég öfunda þær sko ekki neitttttttttttttttt.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 15:14:11 / irismjoll

Þorláksmessa

Jæja, þá er stutt í gleðina. Er á fullu að taka til og hlusta á jólalögin, Frostrósir er í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Hef verið að hlusta soldið á Garðar Cortes líka, ansi góður söngvari drengurinn og ekki skemmir útlitið fyrir :lol:.

Búin að heyra í mömmu. Sú gamla spurði grænmetisætuna hvort hún ætlaði að borða skötu, hehe. Heimsótti hana í gær og áttum við notalega stund hjá henni ég og litlu dúllurnar. Hittum Dana og Gullu.

Ég óska öllum ættingjum og vinum gleðilegra jóla. Verð með hugann í Suður-Afríku hjá Díönu minni á morgun, öfunda hana pínulítið af því að vera í hitanum.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2005 00:20:16 / irismjoll

vika til jóla, ja, tíminn líður.

Var á útskrift í gær. Þetta er alltaf hátíðarstund en í gær var sérstaklega yndislegur hópur af krökkum að útskrifast. Ég byrjaði að kenna sumum þeirra þegar þau voru enn í 10. bekk. Guð hvað þau hafa þroskast á þessum árum, ótrúlegt og ég sem hef ekki elst um eitt einasta ár.

Rakst á Gyðu frænku mína í Smáralindinni í gær. Hef ekki séð hana í mörg ár, algjör skömm að þessu. Settumst og drukkum saman kaffi og ákváðum að ég myndi heimsækja hana eftir áramót.

Skellti mér í höfuðborgina seinni partinn. Byrjaði á því að fara á tónleika í Hallgrímskirkju. Þar komu fram karlakór Reykjavíkur og drengjakór Reykjavíkur. Þetta voru alveg ótrúlega góðir tónleikar. Hljómburðurinn í kirkjunni er alveg magnaður. Sumir ponnarnir í drengjakórnum voru nú ekki háir í loftinu, ja, og ekki gamlir heldur og var gaman að fylgjast með þeim. Einn sló alveg í gegn hjá mér þegar hann geispaði í miðju lagi:lol:.

Eftir tónleikana fór ég og borðaði í Iðnó og sá síðan Hilmi Snæ brillera í Mín eigin kona. Ég bara skil ekki hvernig hann getur skipt svona á milli gerva, minnir að ég hafi heyrt að þarna kæmu fyrir yfir 30 persónur en hann er samt einn á sviðinu allan tímann, alla næstum þrjá tímana mínus hlé. Hreint ótrúlegt. Það gladdi auðvitað þýskukennarahjartað að heyra hann mæla á mjög góðri þýðversku.:P


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 16:38:39 / irismjoll

Búin að skila einkunnum

Þá líður að því að formlega jólafríið hefjist, skilaði síðustu einkunnunum í dag. Er að fara á jólamatinn í MK á eftir og sit og er að lakka neglurnar og lesa blogg hjá ættingjum og vinum. Ég hef soldið verið að spá í þetta jólastress sem alls staðar er verið að tala um. Mér finnst ég vera alveg eins og álfur út úr hól af því að ég finn ekki fyrir stressi. Er þetta ekki bara eitthvað sem er algjör óþarfi. Jólin koma jú alveg sama hvort við erum stressuð eða ekki.

Mig langar að segja ykkur smá sögu af fyrstu jólunum mínum á Hjónagörðunum. Ég var ein með Díönu og Evu. Ég var að elda matinn og hringsnerist í eldhúsinu af stressi, klukkan var jú að verða sex og ekki allt tilbúið. Allt í einu stoppaði ég og hugsaði og hvað með það???? Ég áttaði mig á því að það gerir ekkert til þó að borðað sé klukkan korter yfir sex eða hálfsjö eða hvað sem er.

Munum að njóta þessa tíma, ekki gleyma okkur í einhverju óþarfa stressi.


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 22:23:10 / irismjoll

Nýjar myndir á myndasíðunni

Ég er búin að setja inn myndir frá ættarmótinu í ágúst sem og ferðinni minni til London. Ekkert smá flott fólk í þessari fjölskyldu.


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 22:02:55 / irismjoll

Frostrósir og Woyzeck

Það er búið að vera mikið að gera í menningunni síðustu daga hjá mér. Í gær fór ég að sjá Woyzeck í Borgarleikhúsinu. Algjört augnakonfekt, mikið að gerast á sviðinu og utan þess. Í dag fór ég svo á tónleika með Dívunum í Laugardagshöllinni. Þeir voru alveg stórkostlegir. Enduðu á laginu Hugurinn fer hærra, alveg magnað.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2005 11:41:59 / irismjoll

Helgin að verða búin?

Já, enn ein helgin að verða búin og ég ekki búin að gera neitt sniðugt. Þessa helgi voru stelpurnar hjá pabba sínum, svo það hefði nú verkið hægt að fara út á lífið, en nei, mín eyddi laugardagskvöldinu fyrir framan sjónvarpið og fyrir framan tölvuna, er maður ekki dull. Þetta er fyrsta helgin í langan tíma sem ég þarf sama og ekkert að vinna og þá bara veit ég ekki hvað ég á af mér að gera. Held ég þurfi að fara í meðferð, er háð tölvunni. Kannski ekki svo slæmt eða hvað? Núna er ég að borða morgunmatinn og flakka um vefinn, ætlaði mér að lesa blöðin og leysa Sudoku dagsins en gleymdi mér. Er að verða háð þessu Sudoku gátum líka. Ótrúlega skemmtilegt. Á www.websudoku.com er hægt að leysa svona gátur online eða prenta þær út. Jæja, bless í bili.


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 00:07:14 / irismjoll

Ó, er ég með blogg :)

Var allt í einu að fatta að eitthvað hefði ég gleymt blogginu. Hef bara ekki haft neinn tíma til að sinna þess. Er búin að vera að drukkna í vinnu, geri þetta aldrei aftur, eða vonandi ekki:D. Ég er eiginlega bara með tölvukennsla þessa önn, kenni þýsku skitna þrjá tíma á viku. Tölvukennslunni fylgir ótrúlega mikil verkefnayfirferð en skemmtileg kennsla þar sem nemendur eru eldri og hafa svo mikinn áhuga á að læra að stundum líða frímínúturnar án þess að þær fatti það. Nóg af vinnublaðri.

Ég er auðvitað búin að fara út einu sinni síðan síðast. Skrapp til London í byrjun október. Yndisleg ferð, ég var mest allan tíma ein að væflast um London, akkúrat það sem ég þurfti eftir mikla vinnutörn. Fór tvisvar í leikhús, sá Saturday Night Fever, lögin auðvitað klassísk og svo fór ég með Díönu og Henry á Woman in Black. Frábært stykki, söngleikur eftir Andrew Loyd Webber. Æðislega skemmtilegt. Við Díana borðuðum á frábærum indverskum veitingastað, hann heitir Red Fort. Ef þú ert hrifin/n af indverskum mat og átt leið um London þá skaltu kíkja á þennan.

Já, ég gleymi aðalfréttunum, ég er búin að vera reyklaus síðan 1.nóvember. Er ég ekki dugleg;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.08.2005 13:33:42 / irismjoll

Graz

Loksins komin i loftid aftur og audvitad i utlöndum. Er stödd i Graz a radstefnu. Vedrid er frabaert, nuna er sol og örugglega 25 gradur ef ekki meira. Er a leidinni ut i goda vedrid, alltof of heitt til ad hlusta a einhverja voda "merkilega" fyrirlestra.

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2005 16:39:14 / irismjoll

Búðaráp

Var að koma heim úr búðarápi, fór í Húsasmiðjuna, Rúmfatalagerinn og Elko. Fékk alls konar sniðugar hugmyndir í Húsasmiðjunni, vandamálið er bara að peningana vantar til framkvæmda. Ég verð bara að vona að Lottóið verði mér hliðstætt á næstunni, en líklegast verð ég þá að kaupa mér miða til þess að eiga möguleika, eða hvað :lol:.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2